GRÉTAR Rafn Steinsson og félagar hans í Bolton fóru illa að ráði sínu í hinum mikilvæga fallslag gegn Hull á Reebok-vellinum í gærkvöldi.
GRÉTAR Rafn Steinsson og félagar hans í Bolton fóru illa að ráði sínu í hinum mikilvæga fallslag gegn Hull á Reebok-vellinum í gærkvöldi. Bolton komst í 2:0 eftir klukkutíma leik með mörkum frá Ivan Klasnic og Kevin Davies en Bolton-menn sváfu á verðinum því Stephen Hunt náði að jafna metin með tveimur mörkum á sjö mínútna kafla og niðurstaðan 2:2. Minnstu munaði að Grétar Rafn Steinsson næði að tryggja heimamönnum sigurinn en þrumuskot hans af um 20 metra færi fór hárfínt framhjá markinu.
gummih@mbl.is