Hann lætur ekki deigan síga hann Helgi Daníelsson , sem Kvenfélagið Baugur í Grímsey kaus fyrir nokkru Grímseying númer eitt. Nú hefur Helgi í annað sinn gefið út dagatal og á því er að finna ljósmyndir af gömlum bæjum í eyjunni fögru við...
Hann lætur ekki deigan síga hann Helgi Daníelsson , sem Kvenfélagið Baugur í Grímsey kaus fyrir nokkru Grímseying númer eitt. Nú hefur Helgi í annað sinn gefið út dagatal og á því er að finna ljósmyndir af gömlum bæjum í eyjunni fögru við heimskautsbaug. Allur ágóði verður notaður til að efla Ljósmyndasafn Grímseyjar. Vefurinn ljosmyndir.grimsey.is hefur ekki verið opnaður formlega en nú þegar er hægt að skoða þar fjölda mynda.