Heilsusamlegt? Hugsanlega er hollt að nota síma segir ný rannsókn.
Heilsusamlegt? Hugsanlega er hollt að nota síma segir ný rannsókn. — Morgunblaðið/Ómar
NÝJAR rannsóknir benda til þess að notkun farsíma kunni að vera heilsusamleg því rafsegulbylgjur sem síminn sendir frá sér gætu unnið gegn áhrifum Alzheimersjúkdómsins og hugsanlega unnið bug á honum.

NÝJAR rannsóknir benda til þess að notkun farsíma kunni að vera heilsusamleg því rafsegulbylgjur sem síminn sendir frá sér gætu unnið gegn áhrifum Alzheimersjúkdómsins og hugsanlega unnið bug á honum.

Vísindamenn hjá háskólanum í Suður-Flórída beindu rafsegulbylgjum, svipuðum þeim sem bandarískir farsímar senda frá sér, að 96 músum sem flestum hafði verið erfðabreytt þannig að þær þróuðu með sér Alzheimersjúkdóminn með aldrinum.

Beitt var 918 megaherza tíðni tvisvar á dag í eina klukkustund í senn á sjö til níu mánaða tímabili. Það svarar til nokkurra áratuga á mannsævi.

Í eldri músum hafði þetta þau áhrif að uppsöfnun svonefnds beta-amyloids, sem safnast upp í heila Alzheimersjúklinga, hætti. Þá dró einnig úr minnisglöpum meðal músanna.

Yngri mýs, sem ekki sýndu enn merki um minnisglöp, virtust ekki þróa með sér Alzheimersjúkdóminn eftir að rafsegulbylgjum hafði verið beint að þeim í nokkra mánuði.

Þetta mun vera fyrsta rannsóknin á áhrifum langtímanotkunar farsíma og niðurstöðurnar komu vísindamönnunum á óvart. Gary Arendash, prófessor við Suður-Flórídaháskóla, sagðist upphaflega hafa haft þá tilgátu að rafsegulbylgjur frá farsímum hröðuðu framgangi Alzheimer í músum. Niðurstaðan hefði hins vegar orðið þveröfug.