Forvitni.
Norður | |
♠ÁKG653 | |
♥8 | |
♦Á94 | |
♣964 |
Vestur | Austur |
♠D10 | ♠-- |
♥63 | ♥ÁDG1097542 |
♦DG652 | ♦108 |
♣K1073 | ♣85 |
Suður | |
♠98742 | |
♥K | |
♦K73 | |
♣ÁDG2 |
Með opnunarstyrk og tilskilda lengd í spaða gerði suður það sem kerfið bauð – opnaði á 1♠. Þetta var fyrsta spil í jólatvímenningi BR. Besta svar norðurs er vafalítið 2G í merkingunni slemmuáhugi í spaða, en sá norður sem hér um ræðir er hrekkjalómur og sagði 2♣ í útspilsfælandi tilgangi. Kom þá óvænt hljóð úr austri, sem stökk í 4♥. Pass til norðurs. „Það verður að gera fleira en gott þykir,“ hugsaði norður og sagði 5♠ – áskorun. En suður treysti sér ekki hærra.
Vestur var forvitinn um sagnir: „Eru 5♠ spurning um trompið?“
„Ég vona ekki,“ svaraði suður.
Út kom hjarta upp á ás og ♣8 í öðrum slag. Sagnhafi drap á ásinn tók ♠Á-K og spilaði laufi á drottningu. Vestur drap strax og lenti þá óhjákvæmilega í láglitaþvingun í lokin.