Út er komin platan And In The Endless Pause There Came The Sound Of Bees , sem inniheldur tónlist Jóhanns Jóhannssonar við myndina Varmints , hálftíma teiknimynd af listrænum toga.
Út er komin platan And In The Endless Pause There Came The Sound Of Bees , sem inniheldur tónlist Jóhanns Jóhannssonar við myndina Varmints , hálftíma teiknimynd af listrænum toga. Til stóð að tónlistin kæmi eingöngu út í takmörkuðu upplagi en viðbrögðin við henni voru slík að ákveðið var að setja hana í almennari dreifingu. Jóhann reifar hugmyndir sínar um kvikmyndatónlist í spjalli við Morgunblaðið og skýrir frá fleiri verkefnum sínum af þeim meiði.