Gaga Polaroid-aðdáandi.
Gaga Polaroid-aðdáandi. — Reuters
TÓNLISTARKONAN Lady Gaga hefur gengið til liðs við Polaroid fyrirtækið. Gaga mun gegna hlutverki listræns stjórnanda við hönnun á nýrri línu af stafrænum Polaroid-myndavélum sem prenta myndirnar út um leið og þær eru teknar.

TÓNLISTARKONAN Lady Gaga hefur gengið til liðs við Polaroid fyrirtækið. Gaga mun gegna hlutverki listræns stjórnanda við hönnun á nýrri línu af stafrænum Polaroid-myndavélum sem prenta myndirnar út um leið og þær eru teknar. „Tja, ég er svo sannarlega Polaroid-mynda- vélastelpa,“ sagði Gaga þegar hún greindi fjölmiðlum frá þessu. Hún hefði mikið dálæti á Polaroid-myndum.

Gaga lagði áherslu á að vélarnar yrðu ekki seldar með hennar nafni á neinn hátt og að andlit hennar yrði ekki notaðar í kynningar-herferðir fyrir hina nýju myndavélalínu.