Kristinn Sigmundsson
Kristinn Sigmundsson
BASSASÖNGVARINN Kristinn Sigmundsson verður í beinni útsendingu á Rás 1 í kvöld þegar hann syngur í sýningu Metrópólitan-óperunnar í New York á óperu Richards Strauss, Rósariddaranum .

BASSASÖNGVARINN Kristinn Sigmundsson verður í beinni útsendingu á Rás 1 í kvöld þegar hann syngur í sýningu Metrópólitan-óperunnar í New York á óperu Richards Strauss, Rósariddaranum . Kristinn fer með eitt aðalhlutverkanna í óperunni, hlutverk Ochs baróns og hefur fengið lofsamlega dóma fyrir þá túlkun sína.

Í helstu hlutverkum öðrum eru Renée Fleming og Susan Graham. Útsendingin hefst kl. 18.04 og kynnir útsendingarinnar verður Una Margrét Jónsdóttir. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðunni metoperafamily.org.