Icelandair og Iceland Express áætla að hækkun eldsneytisreikninga vegna hins nýja kolefnisgjalds nemi samtals 300 milljónum.

Icelandair og Iceland Express áætla að hækkun eldsneytisreikninga vegna hins nýja kolefnisgjalds nemi samtals 300 milljónum. Iceland Express er nú að undirbúa að hækka gjaldskrána vegna kolefnisgjaldsins og annarra gjaldahækkana en Icelandair hefur ekki tekið ákvarðanir um verðhækkanir. Engar ákvarðanir hafa heldur verið teknar hjá Flugfélagi Íslands en þar á bæ er vandlega fylgst með stöðunni.

Misjafnt er hvaða möguleika samgöngufyrirtæki hafa á að velta hækkunum út í verðlagið því sum hafa gert bindandi verðtilboð. 4