Úr District 9 Maður breytist í geimveru og er ofsóttur fyrir vikið.

Kvikmyndaleikstjórinn Neill Blomkamp, sá sem leikstýrði District 9 , segist heldur vilja gera forsögu heldur en framhaldssögu, verði önnur mynd gerð um átök hinna innilokuðu geimvera við menn.

„Ég hefði ekkert á móti því að fikta aftur í þessu,“ sagði Blomkamp í viðtali við LA Times. Þó yrði sagan að ganga upp og nægilega góð ástæða til þess að halda áfram með söguna.

„Ég hef ekki mikinn áhuga á því að láta geimverurnar snúa aftur og sprengja hluti í loft upp en forsaga gæti verið áhugaverð,“ segir leikstjórinn.