Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞRJÁR lítið þekktar dökkhærðar söngkonur og tveir kunnir karlkyns söngvarar taka þátt í fyrsta undanúrslitakvöldi Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Tvö lög af þeim fimm sem keppa í kvöld komast áfram í úrslitaþáttinn sem fer fram 6. febrúar og eru það áhorfendur sem velja þau með símakosningu. Næstu undanúrslitaþættir fara fram 16. og 23. janúar.
Lögin fimm sem taka þátt í kvöld eru öll sungin á ensku og fjalla yfirleitt um ástina eða annað álíka fallegt.
In The Future
Eftir: Bryndísi Sunnu Valdimarsdóttur og Daða Georgsson
Flytjandi: Karen Pálsdóttir
You Knocked Upon My Door
Eftir: Jóhannes Kára Kristinsson
Flytjandi: Sigurjón Brink
Out Of Sight
Eftir: Matthías Stefánsson og Matthías Matthíasson
Flytjandi: Matthías Matthíasson
„Out Of Sight“ er stuðað þjóðlagapopp með rokktöktum í söng og leik. Hreif mig ekki en misjafn er smekkur manna sem betur fer.
The One
Eftir: Birgi Jóhann Birgisson og Ingva Þór Kormáksson
Flytjandi: Íris Hólm
You Are The One
Eftir: Harald G. Ásmundsson og Kolbrúnu Evu Viktorsdóttur
Flytjandi: Kolbrún Eva Viktorsdóttir