Frá vinnustofu Bjarna.
Frá vinnustofu Bjarna.
BJARNI Sigurbjörnsson opnar í dag kl. 16 sýningu á málverkum sínum í Reykjavík Art Gallery.

BJARNI Sigurbjörnsson opnar í dag kl. 16 sýningu á málverkum sínum í Reykjavík Art Gallery. Sýningin Myrkt hold er óður til holdsins, listsköpunar sem líkamlegs atferlis, eins og segir í tilkynningu, „einskonar slembimökunar gerandans við eigin hvatir“. Bjarni segir sýninguna eiga sér eins konar forleik í sýningu undir sömu yfirskrift í sal Íslenskrar grafíkur síðastliðið sumar þar sem sýndar voru fyrstu fjórar myndirnar af þeim tíu sem mynda heildarverkið.

Sýningin stendur til 24. janúar og er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-17.