Billy Corgan Á tónleikum fyrir tíu árum, nú kominn í útgáfubransann.
Billy Corgan Á tónleikum fyrir tíu árum, nú kominn í útgáfubransann.
BILLY Corgan, söngvari Smashing Pumpkins, er búinn að stofna plötuútgáfu sem hann stýrir en fyrirtækið er enn ónefnt. Corgan hyggst gefa út tónlist Electric Prunes, Strawberry Alarm Clock og Germs, svo eitthvað sé nefnt.

BILLY Corgan, söngvari Smashing Pumpkins, er búinn að stofna plötuútgáfu sem hann stýrir en fyrirtækið er enn ónefnt.

Corgan hyggst gefa út tónlist Electric Prunes, Strawberry Alarm Clock og Germs, svo eitthvað sé nefnt.

Electric Prunes frá San Fransisco munu vera goðsagnir í sýrurokki. Tónlist sveitarinnar má m.a. finna á plötu með tónlist við kvikmyndina Easy Rider .

Það eru því engir nýgræðingar sem Corgan og félagar hjá hinu ónefnda fyrirtæki hafa í sigtinu. Af öðrum listamönnum má nefna Fancy Space People, YaHoWha 13 og hliðarverkefni Corgan, Starchildren.