* Leikaraparið Jörundur Ragnarsson og Dóra Jóhannsdóttir eiga von á barni og þá hafa þær fréttir einnig borist að þau hafi trúlofað sig. Fréttirnar af trúlofuninni bárust með öldum Fésbókar um áramót og rigndi yfir parið hamingju-óskum.

Jörundur og Dóra eru bæði á Facebook, líkt og annar hver Íslendingur, en á Facebook er líka Daníel nokkur Sævarsson, persóna úr Vakta-þáttunum. Jörundur stofnaði þó ekki síðuna í nafni Daníels því stofnandi ritar 28. maí sl: „Þetter ekki Daníel sjálfur því hann er ekki til og þetter heldur ekki Jörundur sem leikur Daníel, ég er bara eikk-er aðdáandi sem ætla ekki að bera fram nafn sitt.“ Og 3. nóvember: „ég er alveg hættur að pæla í þessari síðu, skal ég segja ykkur.“