* Jónsi , oftast kenndur við Sigur Rós, heldur brátt í tónleika-heimsreisu til að kynna efni af væntanlegri plötu sinni, Go .

* Jónsi , oftast kenndur við Sigur Rós, heldur brátt í tónleika-heimsreisu til að kynna efni af væntanlegri plötu sinni, Go . Jónsi segir ekki endanlega ákveðið hverjir munu spila með honum en þó er vitað að Úlfur Hansson mun plokka bassa og Alex Sommers, unnusti Jónsa, verður í tæknideildinni, mun sjá um sampl og slíkt.

Þá bindur Jónsi vonir við að trommuleikarinn Samuli Kosminen, sem sá um trommuleik á plötunni, komist með sem og Nico Muhly. Jónsi segir ætlunina að flakka vítt og breitt um heiminn með tónleikahaldi. „Hist og her“ eins og Jónsi orðar það. Platan kemur út 20. mars eða þar um bil, að sögn Jónsa.