Avatar er nú orðin næst tekjuhæsta kvikmynd Íslandssögunnar. En Mamma Mía er enn í fyrsta sæti yfir tekjuhæstu myndina hérlendis. Líklegt þykir þó að Avatar muni slá hana út um næstu helgi.
Avatar er nú orðin næst tekjuhæsta kvikmynd Íslandssögunnar. En
Mamma Mía
er enn í fyrsta sæti yfir tekjuhæstu myndina hérlendis. Líklegt þykir þó að
Avatar
muni slá hana út um næstu helgi. Að sögn Guðmundar Breiðfjörð, markaðs- og sölustjóra Senu, hafa þessar miklu vinsældir orðið til þess að ákveðið var að fresta frumsýningu á þriðju myndinni í hinum geysivinsæla þríleik Stiegs Larssons –
Loftkastalinn sem hrundi
til 19. febrúar. Fólk ætti því að fá nægan tíma til að rúlla yfir bókina