NÝIR eigendur hafa tekið við rekstri Rýmis-Ofnasmiðjunnar, en þeir eru Thomas Möller og Haukur Þór Hauksson. Thomas hefur tekið við sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Haukur sem stjórnarformaður.

NÝIR eigendur hafa tekið við rekstri Rýmis-Ofnasmiðjunnar, en þeir eru Thomas Möller og Haukur Þór Hauksson. Thomas hefur tekið við sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Haukur sem stjórnarformaður. Thomas er hagverkfræðingur að mennt og Haukur Þór rekstrarhagfræðingur, en báðir eru þeir með MBA-gráður.

Rými-Ofnasmiðjan hefur framleitt og selt lagerkerfi og verslunarinnréttingar fyrir íslensk fyrirtæki í hálfa öld. Í tilkynningu segir að núverandi starfsemi félagsins verði efld og áhersla aukin á faglega ráðgjöf, hátt þjónustustig og heildarlausnir fyrir viðskiptavini.