Hver þekkir fjölskylduna? ÉG vona að einhver geti hjálpað mér að þekkja fjölskylduna á þessari mynd, sem er líklega tekin í Vestmannaeyjum. Þeir sem geta gefið mér einhverjar upplýsingar eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 5617293 Með góðu þakklæti.
Hver þekkir fjölskylduna?
ÉG vona að einhver geti hjálpað mér að þekkja fjölskylduna á þessari mynd, sem er líklega tekin í Vestmannaeyjum. Þeir sem geta gefið mér einhverjar upplýsingar eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 5617293Með góðu þakklæti.
Markús Hjálmarsson
Skógarbæ, Reykjavík.
Selásbúar
ÞAÐ er grátlegt að ganga um hverfið og sjá allan sóðaskapinn eftir áramótaskoteldana, jafnvel á leiksvæðum barna og í sandkössum. hefur fólk skilið eftir sig sóðaskapinn, svo eru víða jólatré á göngustígum, enda þótt fólk viti að borgin lætur ekki hirða þau í ár.Ágætu Selásbúar, vaknið af dvalanum. Farið nú að þrífa, núna strax
Selásbúi með metnað.