EKKI verður efnt til almennra kosninga um nýjan prest við Selfosskirkju. Frestur til að óska eftir kosningum leið án þess að óskað væri eftir þeim. Væntanlegar umsóknir fara því fyrir valnefnd. Um 1.

EKKI verður efnt til almennra kosninga um nýjan prest við Selfosskirkju. Frestur til að óska eftir kosningum leið án þess að óskað væri eftir þeim. Væntanlegar umsóknir fara því fyrir valnefnd.

Um 1.800 sóknarbörn á Selfossi óskuðu eftir að efnt yrði til almennra kosninga um ráðningu sóknarprests í nýju Selfossprestakalli sem varð til undir lok síðasta árs eftir ákvörðun kirkjuþings um sameiningu Hraungerðis- og Selfossprestakalla. Kirkjan svaraði því til að samkvæmt starfsreglum hennar héldi starfandi sóknarprestur í prestakallinu starfinu. Í þessu tilfelli Kristinn Ág. Friðfinnsson sem var sóknarprestur í gamla Hraungerðisprestakalli. Sóknarpresturinn á Selfossi hefur verið þar í afleysingum.

Biskup Íslands ákvað í staðinn að auglýsa eftir presti til starfa í Selfossprestakalli „með sérstakar skyldur við Selfosskirkju“, eins og það var orðað í auglýsingu. Embættið var auglýst fyrir jól og höfðu sóknarbörn hálfan mánuð til að óska eftir kosningum frá því auglýsing var birt. Sá frestur er nú liðinn.

Umsóknarfrestur um embættið rennur út 25. janúar nk. Kosin hefur verið níu manna valnefnd undir forystu prófasts sem mun reyna að ná samstöðu um ráðningu prests.