Gordon Brown
Gordon Brown
Stuðningurinn við Verkamannaflokkinn í Bretlandi hefur minnkað um tvö prósentustig á einum mánuði og hefur ekki verið jafnlítill frá því í september, samkvæmt nýrri könnun sem dagblaðið The Times birti í gær.

Stuðningurinn við Verkamannaflokkinn í Bretlandi hefur minnkað um tvö prósentustig á einum mánuði og hefur ekki verið jafnlítill frá því í september, samkvæmt nýrri könnun sem dagblaðið The Times birti í gær. Um 28% aðspurðra sögðust styðja Verkamannaflokkinn en stuðningurinn við Íhaldsflokkinn jókst um þrjú prósentustig í 41%.

Næstu þingkosningar í Bretlandi eiga að fara fram ekki síðar en í júní. Engum breskum stjórnmálaflokki hefur tekist að vinna upp svo mikið forskot á jafnskömmum tíma fyrir kosningar, að sögn The Times .