Dagur vonar sýnt í Prag tvo vetur í röð Í BLAÐINU í gær sagði frá því að sýningar á leikriti Birgis Sigurðssonar, Dagur vonar , væru hafnar í Kolowrat-leikhúsinu í Prag.
Dagur vonar sýnt í Prag tvo vetur í röð
Í BLAÐINU í gær sagði frá því að sýningar á leikriti Birgis Sigurðssonar, Dagur vonar , væru hafnar í Kolowrat-leikhúsinu í Prag.Það rétta er að leikritið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í Prag í nóvember árið 2008 og Kolowrat er aðeins eitt af sviðum þjóðleikhússins. Sýningin gekk allan síðasta vetur og var aftur tekin upp í haust og mun væntanlega ganga fram í miðjan maí í ár.