Kristinn Steindórsson
Kristinn Steindórsson
KRISTINN Steindórsson, sóknarmaðurinn efnilegi, hefur skrifað undir nýjan samning við bikarmeistara Breiðabliks í knattspyrnu, til tveggja ára. Kristinn, sem er 19 ára gamall, var í stóru hlutverki hjá Blikum á síðasta ári.

KRISTINN Steindórsson, sóknarmaðurinn efnilegi, hefur skrifað undir nýjan samning við bikarmeistara Breiðabliks í knattspyrnu, til tveggja ára.

Kristinn, sem er 19 ára gamall, var í stóru hlutverki hjá Blikum á síðasta ári. Hann lék alla 22 leiki þeirra í úrvalsdeildinni og var annar markahæsti leikmaður liðsins með 8 mörk. Hann lagði jafnframt upp flest mörk eða 7 talsins. Kristinn lék 3 leiki með 21-árs landsliðinu á s.l. ári og skoraði eitt mark.