Kraftur Jessica Biel kallar ekki allt ömmu sína.

LEIKKONAN íðilfagra Jessica Biel er ásamt vinkonu sinni Emile Hirsch að berjast við að komast á topp Kilimanjaro í Afríku en ferðalagið er á vegum Sameinuðu þjóðanna og ætlað til að vekja athygli á þörfinni á hreinu vatni.

Hópurinn nálgast efsta tindinn óðfluga en einhverjir leiðangursmanna kvarta sáran yfir kulda. Hins vegar herma heimildir að Biel standi sig vel í fjallgöngunni. Til þess að stytta sér stundir á kvöldin þegar áð er spila þau spil og syngja.