Jude Law
Jude Law
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
LEIKARINN Jude Law undirbýr nú að biðja Siennu Miller í annað sinn. Law og Miller voru trúlofuð árið 2004 en hættu saman tveimur árum síðar eftir framhjáhald Law.

LEIKARINN Jude Law undirbýr nú að biðja Siennu Miller í annað sinn. Law og Miller voru trúlofuð árið 2004 en hættu saman tveimur árum síðar eftir framhjáhald Law. Þau byrjuðu saman aftur fyrir stuttu og er Law nú tilbúinn að gera hana að opinberri unnustu sinni aftur.

„Sienna hefur alltaf verið sú eina rétta og núna, þegar hún er komin aftur inn í líf hans, vill hann aldrei aftur láta hana fara.

Jude hugsaði málið alvarlega um jólin þar sem hann var staddur í Bretlandi með fyrrverandi konu sinni og börnum þeirra þremur, og komst að því hversu mikilvægt fjölskyldulífið er honum. Hann þarf góða konu og Sienna er orðin hundleið á því að vera einhleyp og vill vera með Jude það sem eftir er,“ sagði heimildarmaður Daily Mirror.

Fjölskylda Miller væntir þess að fá stóra tilkynningu á komandi vikum. „Jude mun spyrja stóru spurningarinnar bráðlega, hann og Sienna hafa aldrei verið hamingjusamari saman,“ bætti heimildarmaðurinn við.

Law og Miller eyddu dögunum í kringum jólin saman á Barbados ásamt þremur börnum Law, Rafferty, Iris og Rudy.