ÞRETTÁN bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fer fram laugardaginn 13. febrúar nk.

ÞRETTÁN bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fer fram laugardaginn 13. febrúar nk.

Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri og Elín Margrét Hallgrímsdóttir bæjarfulltrúi eru í þeirra hópi.

Frambjóðendur eru: Anna Guðný Guðmundsdóttir, iðjuþjálfi og háskólanemi, Björn Ingimarsson hagfræðingur, Elín Margrét Hallgrímsdóttir, símenntunarstjóri og bæjarfulltrúi, Huld S. Ringsted verslunarrekandi, Kolbrún Sigurgeirsdóttir grunnskólakennari, Kristinn Frímann Árnason bústjóri, Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri og viðskiptafræðingur, Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir, Ragnar Sigurðsson, laganemi og formaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri, Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi, Sigurður Guðmundsson verslunarmaður, Svavar Hannesson vátryggingaráðgjafi og

Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri.