Sýslumaðurinn í Reykjavík verður með uppboð á ýmsum munum í vörumiðstöð Samskipa, Kjalarvogi 7-15, kl. 12 í dag, laugardaginn 17. apríl.
Sýslumaðurinn í Reykjavík verður með uppboð á ýmsum munum í vörumiðstöð Samskipa,
Kjalarvogi 7-15, kl. 12 í dag, laugardaginn 17. apríl.
Meðal þess sem boðið verður upp eru hurðir, skápar, borð, ýmiskonar húsgögn, dekk og felgur,
garðhúsgögn og garðvörur, grill, byggingarefni, glerrúður, fatnaður, hárskraut, skór, heimilistæki,
varahlutir í mótorhjól, álnavörur, sængur, koddar og margt fleira, segir í tilkynningu frá sýslumanni.