PARIS Hilton dvelur nú hjá foreldrum sínum eftir sambandsslitin við Doug Reinhardt. Staðfest var í gær að Hilton væri hætt með Reinhardt en þau höfðu verið saman í fjórtán mánuði. Hún mun nú dvelja á heimili foreldra sinna í Los Angeles á meðan hún jafnar sig á skilnaðinum. Hún setti skilaboð inn á Twitter-síðu sína á fimmtudagskvöldið um að hún væri hjá foreldrum sínum á leiðinni út á lífið með vinkonunum.
Lánið virðist ekki leika við Hilton en auk þess að vera einhleyp á ný braut hún nýlega Blackberry-símann sinn.
„Ég er svo óheppin þegar símar eru annars vegar. Ég bara missti Blackberry-símann minn og skjárinn brotnaði. Núna get ég ekki séð neitt eða lesið, slæmt,“ ritaði hún í aðra færslu á Twitter.
Hin 29 ára partípía virðist leita huggunar í faðmi fjölskyldunnar í kjölfar sambandsslitanna en á miðvikudagskvöldið fór hún út að borða í Hollywood með fjölskyldunni og setti í kjölfarið færslu á Twitter þar sem hún lofsamaði afa sinn.