[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Skuldir Björgólfsfeðga og fyrirtækja tengdra þeim við íslenska bankakerfið námu um 1.000 milljónum evra haustið 2008.

Örn Arnarson

ornarnar@mbl.is

SAMKVÆMT skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið námu samanlagðar skuldir fyrirtækjahópa á vegum þeirra feðga Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar við bankakerfið hér á landi um milljarði evra við fall bankanna haustið 2008. Hér er tekið tillit til eignarhalds þeirra feðga á Samson, stærsta hluthafa Landsbankans, en félög tengd feðgunum skulduðu jafnframt háar upphæðir hjá dótturfélagi Landsbankans í Lúxemborg eða um 320 milljónir evra.

Björgólfsfeðgar skipa því þann hóp einstaklinga sem höfðu eignatengsl við fyrirtæki sem samanlagtskulduðu yfir milljarð evra í íslenska bankakerfinu.

Sem kunnugt er leiðir skýrsla rannsóknarnefndarinnar í ljós að íslensku bankarnir voru stórtækir í útlánum til eigenda sinna og fyrirtækja á þeirra vegum. Þrátt fyrir að reglur kveði á um takmarkanir á hámarksáhættu í einstaka útlánum miðað við eiginfjárgrunn þeirra og skynsamleg áhættustýring gangi út frá því að bankar reyni að dreifa útlánaáhættu þá virðast stjórnendur íslensku bankanna hafa leitt það hjá sér og einbeitt sér að samþjöppun útlánaáhættu.

Eins og sjá má á umfjöllun rannsóknarnefndarinnar þá voru þeir feðgar umsvifamiklir lántakendur í Landsbankanum og Straumi. Þannig námu útlán til fyrirtækja með tengsl við Björgólf Guðmundsson á árunum 2007 til 2008 37% af eiginfjárgrunni Landsbankans. Útlán til Björgólfs Thors í bankanum á sama tímabili námu tæpum fjórðungi af eiginfjárgrunninum. Lán til Eimskips, sem Björgólfur eldri fór með ráðandi hlut í, námu ennfremur um fjórðungi af eiginfjárgrunninum.

Lán til Björgólfs Guðmundssonar í Straumi námu 38% af eiginfjárgrunninum en lán til sonar hans námu 26%. Fimmtungur af eiginfjárgrunninum fór í lánveitingar til Eimskips. Björgólfur Thor tók einnig mikil lán í Glitni en alls námu lántökur hans þar tæpum þriðjungi af eiginfjárgrunni bankans.

Að þessu sögðu má sjá að útlánaáhætta vegna þeirra feðga í íslenska bankakerfinu var umtalsverð. Það virðist ekki hafa haldið vöku fyrir stjórnendum bankanna en í skýrslunni er sagt að bankarnir hafi átt lítið sameiginlegt þegar kom að því að skilgreina eignatengsl Björgólfsfeðganna. Þannig er tekið dæmi af því í skýrslunni að lán Landsbankans til Samson Properties ehf. annarsvegar og Rauðsvíkur ehf. hinsvegar eru ekki skilgreind sem lán til tengdra aðila þó svo að fyrrnefnda félagið hafi átt hið síðarnefnda að fullu.