Óskar Pétursson Syngur með karlakórnum Heimi.
Óskar Pétursson Syngur með karlakórnum Heimi.
KARLAKÓRINN Heimir úr Skagafirði bregður sér austur yfir Tröllaskagann í dag til að halda tvenna tónleika. Þeir fyrri fara fram í Bergi, menningarhúsi Dalvíkinga, kl. 15 í dag og í kvöld, kl. 20.30, verða tónleikar í félagsheimilinu Ýdölum í Aðaldal.
KARLAKÓRINN Heimir úr Skagafirði bregður sér austur yfir Tröllaskagann í dag til að halda tvenna tónleika. Þeir fyrri fara fram í Bergi, menningarhúsi Dalvíkinga, kl. 15 í dag og í kvöld, kl. 20.30, verða tónleikar í félagsheimilinu Ýdölum í Aðaldal. Einsöngvari er Óskar Pétursson frá Álftagerði, undirleikari Thomas R. Higgerson og stjórnandi Stefán R. Gíslason. Heimir hefur farið mikinn í vetur, m.a. tónskreytt frásögn Sturlungu af Örlygsstaðabardaga og verið í slagtogi við Karlakór Reykjavíkur á stórtónleikum. Vorferðin um Norðurland í dag er einskonar uppskeruhátíð í lok einmánaðar. Flutt verður það besta úr vetrarstarfinu, m.a. óperukórar og drykkjuvísur, mjúkleg ástarljóð og örlagakvæði, þróttmikil karlakórslög og blíðlegir vorsöngvar, sem spanna Evrópu víða frá Miðjarðarhafsströndum um rússnesku steppurnar til Íslandsstranda, eins og segir í fréttatilkynningu kórsins.