LEIKARINN Daniel Radcliffe mun fara með aðalhlutverkið í söngleiknum How To Succeed In Business Without Really Trying á Broadway í New York.
Harry Potter-stjarnan mun leika J. Pierrepont, venjulegan starfsmann sem skyndilega rís hratt upp metorðastigann og er allt í einu orðinn aðstoðarforstjóri sem á í ástarævintýri við ritara sinn.
Verkið var fyrst sett á svið á Broadway árið 1962 og aftur 1995 og var þá Matthew Broderick í aðalhlutverki. Verkið, sem gerð var kvikmynd eftir 1967, vann til Pulitz-er-verðlauna 1962, einn af sex söngleikjum sem hafa unnið til þeirra. Rob Ashford mun leikstýra verkinu í þetta skipti.
Radcliffe, sem er 20 ára, hefur áður leikið á Broadway, í leikritinu Equus sem var einnig sýnt á West End í London.