Richard Wagner
Richard Wagner
STOFNUN Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stendur fyrir ráðstefnu í tilefni af áttræðisafmæli Vigdísar. Ráðstefnan hófst í gær, föstudag, en í dag kl. 16 til 17.
STOFNUN Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stendur fyrir ráðstefnu í tilefni af áttræðisafmæli Vigdísar. Ráðstefnan hófst í gær, föstudag, en í dag kl. 16 til 17.30 verður haldið málþingið Æfingasvið æskunnar: Bayreuth, Wagner og íslensku heimildirnar . Fjallað verður um þýðingu alþjóðlegra menningarsamskipta sem byggjast á rótgróinni menningararfleifð fyrir kynslóð framtíðarinnar. Sjónum er beint að mikilvægi tónlistar sem alþjóðlegs tungumáls og dæmi tekið af Tónlistarhátíð ungs fólks í Bayreuth. Málþingið verður haldið á Radisson SAS – Hótel Sögu.