— Reuters
ÁSTRALSKI leikarinn Russell Crowe hefur samið um að koma fram í Bollywood-mynd. Crowe mun leika þýskan rithöfund sem fer í hindúíska pílagrímsferð til Indlands, Kumbh Mela, en verður ástfanginn af ungri konu.

ÁSTRALSKI leikarinn Russell Crowe hefur samið um að koma fram í Bollywood-mynd. Crowe mun leika þýskan rithöfund sem fer í hindúíska pílagrímsferð til Indlands, Kumbh Mela, en verður ástfanginn af ungri konu. Leikstjóri myndarinnar er Sudipto Sen en myndin verður gefin út í tveimur útgáfum, í annarri verður talað hindí en hinni enska. Crowe fær að tala móðurmálið.

Óskarsverðlaunahafar munu sjá um tónlist, búningahönnun og klippingu, þeir A. R. Rahman, Bhanu Athaiya og Chris Dickens.