Kim Kardashian
Kim Kardashian
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
KIM Kardashian raunveruleikaþáttastjarna sást kyssa fótboltamanninn Cristiano Ronaldo á veitingastað. Kardashian hætti nýverið með bandaríska fótboltamanninum Reggie Bush.

KIM Kardashian raunveruleikaþáttastjarna sást kyssa fótboltamanninn Cristiano Ronaldo á veitingastað.

Kardashian hætti nýverið með bandaríska fótboltamanninum Reggie Bush. Sást til hennar nýlega í innilegum atlotum við Real Madrid-kappann Ronaldo á veitingastað á Miami, áður en hún fór með honum á heimili hans þar sem hún dvaldi í nokkra klukkutíma. Kardashian mun hafa verið í fríi á Miami þegar hún hitti Ronaldo.

Samkvæmisstúlkan þokkafulla hefur líka verið sögð eiga í sambandi við Wayne Bridge, annan fótboltakappa og munu þau hafa skipst á fjöldanum öllum af símaskilaboðum.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ronaldo hinn fótalipri hefur verið tengdur við fræga, bandaríska stúlku. Ronaldo sást nefnilega kyssa Paris Hilton á næturklúbbi í fyrra en hún er samkvæmisljón líkt og Kardashian.