ÞAÐ var jafnmikilfenglegt og skelfilegt að sjá gríðarstórt, biksvart öskuský læðast niður Eyjafjöllin aftan að þeim bæjum sem standa við rætur fjallgarðsins og gleypa þá. Ljóst er að undirbúningur bænda í gærdag kom að verulega góðu gagni.
Um tuttugu bæir undir Eyjafjallajökli voru rýmdir í gærkvöldi af varúðarástæðum. Var það gert ef ske kynni að hlaup yrði um miðja nótt, á sama tíma og aska fellur á svæðinu. Myndi það hægja verulega á viðbragðstíma og rýmingu umræddra bæja.
Samkvæmt upplýsingum úr samhæfingarstöð Almannavarna var gert ráð fyrir að íbúar fengju að snúa aftur á bæi sína snemma í dag og gætu þá hugað að skepnum. Reiknað er með áframhaldandi og miklu öskufalli undir Eyjafjöllum í dag.
|
6