Ber enginn ábyrgð? ÞAÐ var nöturlegt að fylgjast með frammistöðu formanna stjórnmálaflokkanna í Kastljósi síðastliðið miðvikudagskvöld. Enginn þeirra sá nokkra sök hjá eigin flokki. Almenningur skilur vel að Steingrímur J.

Ber enginn ábyrgð?

ÞAÐ var nöturlegt að fylgjast með frammistöðu formanna stjórnmálaflokkanna í Kastljósi síðastliðið miðvikudagskvöld. Enginn þeirra sá nokkra sök hjá eigin flokki. Almenningur skilur vel að Steingrímur J. Sigfússon telji sinn flokk ekki bera ábyrgð á nokkru því sem fór úrskeiðis og Hreyfingin verður heldur ekki sökuð um hrunið. En í Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu geta menn ekki endalaust látið eins og ekkert sé þeim að kenna. Ætla Bjarni Benediktsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir að sitja áfram á þingi? Getur virkilega verið að þetta fólk hafi ekki manndóm til að skammast sín og víkja? Þjóðinni blöskrar og fjölmiðlar mega ekki láta eins og þetta sé í lagi.

Borgari.


Svarað í síma 5691100 frá 10-12
velvakandi@mbl.is