Vorsýning dansskólans DanceCenter Reykjavík verður haldin á morgun í Salnum, Kópavogi, kl. 17.
Vorsýning dansskólans DanceCenter Reykjavík verður haldin á morgun í Salnum, Kópavogi, kl. 17. Nemendur skólans hafa æft af kappi fyrir sýninguna og sýna afrakstur námsins en einnig munu sigurvegarar Söngkeppni framhaldsskólanna, Júlí Heiðar og Kristmundur Axel, taka lagið. Nanna Ósk Jónsdóttir er framkvæmdastjóri skólans.