Gaman Margt verður á dagskrá.
Gaman Margt verður á dagskrá.
Á MORGUN, fimmtudag kl. 13-16, verður sumardagurinn fyrsti haldinn hátíðlegur í Þjóðminjasafninu með skemmtidagskrá fyrir börn á öllum aldri og verður ókeypis inn. Kl. 13-15 verður listasmiðja fyrir börnin. Kl.
Á MORGUN, fimmtudag kl. 13-16, verður sumardagurinn fyrsti haldinn hátíðlegur í Þjóðminjasafninu með skemmtidagskrá fyrir börn á öllum aldri og verður ókeypis inn. Kl. 13-15 verður listasmiðja fyrir börnin. Kl. 13:30 mun hljómsveitin Líf leika fyrir gesti og kl. 15 mun Möguleikhúsið sýna barnaleikritið Landið Vífra. Allan daginn geta börnin farið í ratleiki eða fræðsluspor fjölskyldunnar sem hægt er að nálgast í móttöku safnsins. Þá er einnig hægt að nálgast hljóðleiðsögn um safnið fyrir börnin.