Ari Freyr Skúlason
Ari Freyr Skúlason
ARI Freyr Skúlason, leikmaður sænska fyrstudeildarliðsins Sundsvall, fékk reisupassann þegar liðið tapaði fyrir Hammarby, 2:1, í Stokkhólmi í gærkvöldi að viðstöddum 12.000 áhorfendum. Ari var sendur af velli fyrir brot fimm mínútum fyrir leikslok.

ARI Freyr Skúlason, leikmaður sænska fyrstudeildarliðsins Sundsvall, fékk reisupassann þegar liðið tapaði fyrir Hammarby, 2:1, í Stokkhólmi í gærkvöldi að viðstöddum 12.000 áhorfendum. Ari var sendur af velli fyrir brot fimm mínútum fyrir leikslok. Minnstu munaði að Hannesi Þ. Sigurðssyni, sem lék síðustu 40 mínúturnar, tækist að jafna í uppbótartíma fyrir Sundsvall en skot framherjans small í stönginni. gummih@mbl.is