CCP voru í gær veitt Útflutningsverðlaun forseta Íslands. Hilmar Veigar Pétursson forstjóri veitti verðlaununum viðtöku. CCP hlaut verðlaunin fyrir að hafa náð einstökum árangri á heimsvísu í þróun og markaðssetningu fjölþátttöku-tölvuleikja.
CCP voru í gær veitt Útflutningsverðlaun forseta Íslands. Hilmar Veigar Pétursson forstjóri veitti verðlaununum viðtöku. CCP hlaut verðlaunin fyrir að hafa náð einstökum árangri á heimsvísu í þróun og markaðssetningu fjölþátttöku-tölvuleikja. EVE-Online er aðalframleiðsluvara fyrirtækisins en um 350.000 áskrifendur eru að leiknum.