EIN kvikmynd verður frumsýnd í kvikmyndahúsum í dag og ein á föstudag.
21. apríl
Astro Boy
Astro Boy er byggð á samnefndri japanskri teiknimyndasögu og fjallar um lítið vélmenni með ofurkrafta sem gerist hetja borgarinnar Metro City. Vísindamaður í borginni missir son sinn Toby og reynir að endurlífga hann sem vélmenni. Toby uppgötvar brátt að hann hefur ofurkrafta og þegar Metro City er í hættu skerst hann í leikinn.
Leikstjóri myndarinnar er David Bowers en með aðalraddhlutverk fara Nicolas Cage, Kristen Bell, Samuel L. Jackson, Charlize Theron, Bill Nighy og Donald Sutherland.
Erlendir dómar:
Metacritic: 53/100
Empire: 40/100
Rotten Tomatoes: 48/100
23. apríl
She's Out of My League
Kirk hittir Molly eftir að hún týnir símanum sínum á flugvellinum þar sem hann vinnur. Honum til mikillar undrunar vill hin þokkafulla Molly endilega kynnast honum betur, en Kirk er mikill meðaljón að mati vina og ættingja og verður nú að sýna það og sanna að hann geti haldið í bombu eins og Molly.
Leikstjóri er Jim Field Smith en með aðalhlutverk fara Jay Baruchel, Alice Eve, T.J. Miller, Mike Vogel, Nate Torrence og Debra Jo Rupp.
Erlendir dómar:
Rotten Tomatoes: 54/100