[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Haukur Andrésson skoraði eitt af mörkum GUIF þegar liðið tapaði stórt fyrir Sävehof , 33:23, í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn í handknattleik í gærkvöld. Þjálfari GUIF er bróðir Hauks, Kristján Andrésson .

D wight Howard miðherji Orlando var í gær útnefndur varnarmaður ársins í NBA-deildinni annað árið í röð. Hann er sjöundi leikmaðurinn í sögu NBA sem verður fyrir valinu sem varnarmaður ársins tvö ár í röð.

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Ronaldinho er sannfærður um að hann nái að telja landsliðsþjálfarann Dunca á að velja hann í landsliðshópinn sem spilar á HM í Suður-Afríku í sumar. Ronaldinho hefur verið í náðinni hjá Dunca og hann lék síðast með Brasilíumönnum gegn Perúmönnum í apríl á síðasta ári. ,,Ég mun fara á HM og verða meistari. Ég get ekki séð fyrir mér HM án Ronaldinho ,“ segir Ronaldinho í viðtali við vikuritið Chi sem kemur út í dag.

Sergio Aguëro , argentínski framherjinn hjá Atlético Madrid, fer fögrum orðum um Chelsea og kveðst spenntur fyrir því að leika með liðinu. Hann hefur verið talsvert orðaður við félagið að undanförnu.