SKEIFUDAGUR hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri verður haldinn í reiðhöllinni á Mið-Fossum á sumardaginn fyrsta.

SKEIFUDAGUR hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri verður haldinn í reiðhöllinni á Mið-Fossum á sumardaginn fyrsta. Að vanda verður Morgunblaðsskeifan afhent þeim nemanda Landbúnaðarháskólans sem best hefur staðið sig í reiðmennsku- og frumtamninganámi vetrarins.

Einnig verður keppt um Gunnarsbikarinn og ýmis önnur atriði verða til skemmtunar. Dagskráin hefst klukkan 13.

Landbúnaðarháskólinn verður einnig með opið hús á Reykjum í Ölfusi á morgun. Við hátíðardagskrá sem hefst kl. 14 verða afhent garðyrkjuverðlaun LBHÍ og umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar.