Kát Drew Barrymore tekur við viðurkenningunni á GLAAD.
Kát Drew Barrymore tekur við viðurkenningunni á GLAAD. — Reuters
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
LEIKKONAN Drew Barrymore hefur lofað Ricky Martin fyrir að opinbera samkynhneigð sína. Barrymore var ein af mörgum frægum sem héngu í kringum söngvarann á árlegri fjölmiðlaverðlaunahátíð samkynhneigðra (GLAAD) á laugardaginn.

LEIKKONAN Drew Barrymore hefur lofað Ricky Martin fyrir að opinbera samkynhneigð sína.

Barrymore var ein af mörgum frægum sem héngu í kringum söngvarann á árlegri fjölmiðlaverðlaunahátíð samkynhneigðra (GLAAD) á laugardaginn.

Ricky Martin kom út úr skápnum í síðasta mánuði.

„Háleitt markmið mitt er að við getum búið saman í heimi þar sem aðrir eru ekki dæmdir. Ég vil bara að fólk geti lifað lífi sínu eins og það vill. Ég fagna því sem Ricky hefur gert, við verðum að skapa veröld fyrir hvert annað þar sem samþykki á lífi annarra skiptir máli,“ sagði Barrymore á hátíðinni. Hún tók við viðurkenningu fyrir að hafa barist ötullega fyrir lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra

Auk þess að lofa Ricky Martin notaði hún tækifærið til að þakka þekktum samkynhneigðum einstaklingum sem hafa haft áhrif á líf hennar og annarra.