GLAMÚRGELLAN Paris Hilton sást leika sér í klessubílum á Coachella-tónlistarhátíðinni sem var haldin í Kaliforníu um síðustu helgi. Hilton var þar með systur sinni Nicky og virtust þær skemmta sér vel.
Hilton hélt aðdáendum sínum upplýstum í gegnum samskiptasíðuna Twitter. „Ég skemmti mér svo vel í kvöld, rokkaði með Thom Yorke og Gorillaz, brjálað stuð! Armani partíið var mjög skemmtilegt, karnival-þema. Prófaði öll tækin,“ skrifaði Hilton á Twitter eitt kvöldið. Hún sagði uppáhaldsatriðin sín á tónlistarhátíðinni hafa verið Muse og Jay-Z.
Aðrar stjörnur sem mættu á hátíðina voru m.a. Katy Perry, Alexa Chung, Mischa Barton og Anne Hathaway.
Hilton hætti nýlega með unnusta sínum, Doug Reinhardt, eftir fjórtán mánaða samband.