Ásatrúarfélagið efnir til sumargleði á morgun, sumardaginn fyrsta.
Ásatrúarfélagið efnir til sumargleði á morgun, sumardaginn fyrsta. Í Öskjuhlíðinni, þar sem fyrirhugað hof ásatrúarmanna mun rísa, stendur til að afhjúpa við þetta tilefni minnisvarða um fyrsta allsherjargoða félagsins, Sveinbjörn Beinteinsson rímnaskáld. Sumargleðin hefst kl. 15.