Guðrún Nordal
Guðrún Nordal
ÁRSFUNDUR Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður haldinn á Hótel Sögu, Harvard-salnum, kl. 8:15-10:00 í dag.

ÁRSFUNDUR Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður haldinn á Hótel Sögu, Harvard-salnum, kl. 8:15-10:00 í dag. Á fundinum verður fjallað um starfsemi og framtíðarsýn stofnunarinnar og bent á þau miklu verðmæti sem búa í þeim margvíslegu gögnum (handritum, örnefnaskrám, þjóðfræðiefni, orðfræðasöfnum) sem stofnunin varðveitir.

Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, Úlfar Bragason, Jónína Hafsteinsdóttir, Kristín Bjarnadóttir, Ari Páll Kristinsson og Sigurgeir Steingrímsson flytja erindi.