Margrét Bóasdóttir
Margrét Bóasdóttir
KVENNAKÓR við Háskóla Íslands heldur tónleika í Norræna húsinu sumardaginn fyrsta kl. 15.

KVENNAKÓR við Háskóla Íslands heldur tónleika í Norræna húsinu sumardaginn fyrsta kl. 15.

Á dagskrá tónleikanna eru meðal annars kórverk eftir Robert Schumann en í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans, kórverk eftir Franz Schubert, Joseph Haydn og Antonin Dvorák, lög eftir Jón Ásgeirsson við ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur, lög eftir Gunnstein Ólafsson við ljóð Steins Steinarr og lög eftir Jónas Tómasson við ljóð Þórarins Eldjárns.

Margrét Bóasdóttir stjórnar kórnum og Sólveig Anna Jónsdóttir leikur undir á píanó.