— Morgunblaðið/Ernir
NEMENDUR í 2. og 3. bekk Álftamýrarskóla fengu í gær afhentar sumargjafir frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
NEMENDUR í 2. og 3. bekk Álftamýrarskóla fengu í gær afhentar sumargjafir frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Það var kátt á hjalla á skólalóðinni þegar nemendurnir léku sér með sippubönd og bolta og til að börnin glötuðu ekki nýju gjöfunum sínum voru þær kirfilega merktar með nafni hvers og eins. Sumargjafirnar voru eflaust kærkomnar enda fátt sem minnti á sumarið í gær þegar snjókorn féllu af himni ofan.