17. apríl
PopUp-verzlun verður sett upp á efri hæð í Kaffi Sólón í dag. Opið verður á milli kl. 12 og 17 en að þessu sinni taka 10 hönnunarmerki þátt. Þetta verður síðasta tækifæri fyrir höfuðborgarbúa í bili til að skella sér á PopUp en í næsta mánuði ætlar verzlunin að heimsækja höfuðstað Norðurlands.
22.-25. apríl
Þessa daga verður Jazzhátíð Garðabæjar haldin í fimmta sinn. Hátíðin fer fram á þremur stöðum, í Urðarbrunni, sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ, í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju og í kirkjunni sjálfri. Listrænn stjórnandi er Sigurður Flosason en dagskrána má finna á www.gardabaer.is.