Gæsluvarðhald rann út í gær yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa ráðist á 64 ára gamlan mann, eiginkonu hans og dóttur við heimili þeirra í Reykjanesbæ 3. maí sl.

Gæsluvarðhald rann út í gær yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa ráðist á 64 ára gamlan mann, eiginkonu hans og dóttur við heimili þeirra í Reykjanesbæ 3. maí sl.

Í fréttatilkynningu sem lögreglan á Suðurnesjum sendi fjölmiðlum kemur fram að líkamsárásin hafi verið alvarleg og maðurinn hlotið beinbrot auk annarra áverka en konurnar hlotið minni áverka.

Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í kjölfar atburðarins. Fram hefur komið að árásin á fólkið hafi verið handrukkunaraðgerðir gegn heimilismanni sem ekki var heima þegar atvikið átti sér stað.

Mennirnir, sem eru um tvítugt, voru leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness í gær og krafðist lögreglustjórinn á Suðurnesjum þess að þeir yrðu úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í allt að fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna. Dómari tók sér sólarhringsfrest til að taka afstöðu til kröfunnar.