Skilanefnd Glitnis hefur höfðað mál gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, fyrrverandi stjórnarformanni FL Group, og fleiri tengdum aðilum fyrir að hafa svikið tvo milljarða Bandaríkjadala, 258 milljarða króna, út úr bankanum. Var málið þingfest í New York í gær, skv. frétt Bloomberg.
Segir í fréttinni að Jón Ásgeir hafi leitt hóp sem hrifsaði til sín völdin í bankanum og hreinsaði út úr honum peninga sem voru notaðir til þess að styðja við þeirra eigin fyrirtæki sem voru komin að fótum fram, að því er fram kemur í málsskjölum sem lögð voru fram í dómnum á Manhattan í New York. Auk Jóns Ásgeirs er fyrrv. stjórnarformanni Glitnis, Þorsteini Jónssyni, og endurskoðunarfyrirtæki Glitnis, PricewaterhouseCoopers hf., stefnt í málinu. Einnig er Jóni Sigurðssyni, fyrrv. forstjóra FL Group, Ingibjörgu Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs og síðar stjórnarformanni FL Group, Hannesi Smárasyni, Pálma Haraldssyni og Lárusi Welding, fyrrv. bankastjóra Glitnis, stefnt. Árni Tómasson, formaður skilanefndar, vildi ekki tjá sig um málið í gærkvöldi.
- Fjármununum, 2 milljörðum dala, var safnað með útgáfu skuldabréfa til fjárfesta í New York